 |
 |
| Saga fyrirtækisins |
 |
Handprjónasamband Íslands er samvinnufélag sem var stofnað í nóvember árið 1977. Sambandið var stofnað af um 1.000 einstaklingum, aðallega konum, víðsvegar um landið sem höfðu drýgt heimilistekjurnar með því að prjóna peysur og aðrar vörur úr íslenskri ull. Vörurnar höfðu menn síðan selt til hinna ýmsu aðila sem ráku ferðamennaverslanir eða keyptu vörunar til útflutnings.
Með stofnun Handprjónasambandsins vildu menn hafa þessi viðskipti á eigin hendi og jafnframt bæta kjör prjónafólks.
Félagið hefur frá stofnun rekið verslun í eigin húsnæði að Skólavörðustíg 19 í Reykjavík og undanfarin ár einnig á Laugavegi 64, auk þess að eiga fyrirtækið “Ull og gjafavörur” sem rekur ferðamannaverslunina á Hótel Sögu. Þá hefur töluvert af ullarvörum verið fluttar út á vegum fyrirtækisins.
Árið 2008 tók Handprjónasambandið við rekstri Saumasporsins sem staðsett var í Kópavogi. Saumasporið var þá flutt í húsnæði Handprjónasambandsins að Skólavörðustíg þar sem nú er verslun með ýmsar gerðir rennilása og saumavörur.
Virkir meðlimir samtakanna eru nú um 200 en nýir félagar bætast stöðugt í hópinn.
Starfsmenn fyrirtækisins eru 15 talsins í byrjun árs 2009.
|
|
|
|