Skólavörðustígur 19
101 Reykjavík
Sími 552 1890
Fax 554 5632
Heim
LEIT LEIT
English
Íslenska lopapeysan
Hin eina sanna lopapeysa, með tvíbönduðu munstri á hringlaga herðastykki, er búin að vinna sér íslenskan þegnrétt, þó ekki sé saga hennar ýkja löng. Hún kom ekki fram fyrr en á 6.áratugnum, en óvíst er hvar og hvernig. Sumir telja að fyrirmyndin sé grænlenskir kvenbúningar, ef til vill vegna þess að stundum var talað um lopapeysur með grænlenska munstrinu. Öðrum finnst líklegt að fyrirmyndina sé að finna í peysum sem byrjað var að framleiða í Bohusléni í Suður-Svíþjóð í byrjun 5.áratugarins. Þessar upprunakenningar eru býsna langsóttar. Það eina sem íslenskar lopapeysur eiga sameiginlegt með grænlenskum perlusaumi er hringlaga herðastykki, munstur og litir eru gjörólík. Svipað má segja um sænsku peysurnar, þær voru að vísu nær hugmyndinni þar sem þær voru prjónaðar með hringlaga herðastykki, en úr mjög fínu garni og með allt öðruvísi munstrum. Hafi íslenskar lopapeysur orðið til fyrir áhrif frá þeim hefur þurft mikla hugkvæmni til að aðlaga snið, úrtökur og munstur að mjög ólíku efni. Telja verður því íslensku lopapeysuna frumhönnun. Ekki er óhugsandi að enn eigi eftir að koma á daginn hver hinn raunverulegi höfundur hennar var.
Heimild Ístex prjónabók nr. 12

HeimHeim Hafðu sambandHafðu samband Til bakaTil baka UppUpp