Skólavörðustígur 19
101 Reykjavík
Sími 552 1890
Fax 554 5632
Heim
LEIT LEIT
English
Poncho
Efni
Álafoss lopi, 4 dokkur
Loðband – einband, 2 dokkur

Prjónar nr. 10

Prjónaðferðir
Ponchoið er prjónað með sléttu prjóni í hring. Prjónið saman einn þráð af Álafoss lopa og einn þráð af einbandi. Ef vill má punta það með brugðnum lykkjum hér og þar.

Prjónfesta
7 lykkur og 12 umf = 10 x 10 cm

Fitjið upp á prjóna nr 10 46 L.
Tengið saman í hring og prj slétt prjón. Setjið merki í 23. lykkju og 46. lykkju.
Prj áfram slétt og aukið út 1 lykkju sitt hvoru megin við 23. og 46. lykkju í annarri hverri umf.

Prjónið þar til stykkið mælist 38 cm. Fellið laust af.

Gangið frá endum.

Klippið 30 cm langa enda og setjið kögur í aðra hvora lykkju.


HeimHeim Hafðu sambandHafðu samband Til bakaTil baka UppUpp