Skólavörðustígur 19
101 Reykjavík
Sími 552 1890
Fax 554 5632
Heim
LEIT LEIT
English
Að gerast félagsmaður
Til að gerast félagsmaður í Handprjónasambandinu þarf að leggja inn stofnfé sem samsvarar upphæðinni sem greidd er fyrir eina peysu af meðalstærð. Það gengur þannig fyrir sig að verðandi félagsmaður mætir og fær úthlutað verkefni, en greiðslan fyrir verkefnið gengur upp í stofnkostnaðinn. Árgjald er svo 500 krónur á ári og er það einnig dregið frá greiðslu fyrir vörur sem hefur verið skilað inn. Þannig þarf félagsmaður ekki að leggja út neitt fé við inngöngu í félagið. Félagar leggja vörur sínar inn hjá móttökunni í versluninni að Skólavörðustíg en einnig er móttaka á Akranesi einu sinni í mánuði. Starfsmenn leiðbeina prjónafólki og fer það eftir aðstæðum og þörfum verslunarinnar hvað fólk er beðið um að prjóna. Vörur eru skrifaðar inn hjá félagsmönnum og er greitt fyrir þær þegar fjárhagur leyfir. Þeir fjármunir sem félagsmenn eiga inni hjá félaginu bera vexti. Félagar fá efni í þær vörur sem prjónaðar eru fyrir sambandið á heildsöluverði. Ekki er greitt fyrir efnið við móttöku eða úthlutun verkefna heldur er kostnaður skrifaður inn og dreginn frá innleggi þegar greiðslur fara fram. Félagar fá afslátt á efni (lopa/bandi) til eigin nota. Á undanförnum mánuðum hefur verið góð sala á vörum verslunarinnar og er farið að bera á skorti í sumum vöruflokkum. Stjórn félagsins vill því hvetja félagsmenn til að aðstoða við að bæta þar úr. #b Nýir félagsmenn eru boðnir velkomnir og er áhugasömum og þeim sem vilja kynna sér félagsaðild betur bent að hafa samband við starfsmenn á Skólavörðustíg eða í síma 552 1890. #-b
HeimHeim Hafðu sambandHafðu samband Til bakaTil baka UppUpp