 |
|
 |
 |
 |
|
|
 |
 |
Héðinsfjarðartrefillinn
Við höfum nú til sölu Héðinsfjarðartrefillinn í verslunum okkar á Skólavörðustíg 19 og Laugavegi 64.
Trefillinn er til styrktar Umhyggju, félagi til stuðnings langveikum börnum.
Hver bútur er hluti af 11,5 kílómetra löngum trefli sem náði frá miðbæ Siglufjarðar til miðbæjar Ólafsfjarðar í gegnum Héðinsfjarðargöngin, við vígslu þeirra í október 2010. Vinsamlega leggið fram kr. 2000 eða meira til styrktar góðu málefni og fáið trefil til minningar.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í maí
Prjónakaffi, verður 3. maí. Kl. 20:00 - 22:00, í Amokka í Borgartúni.
Það er Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir sem kemur og kynnir bókina sína: Þóra heklbók.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í apríl
Prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins í apríl verður fimmtudaginn 12. 4. 2012, í Amokka Borgartúni 21a, kl. 20:00 -22:00.
Kynnir kvöldsins er Sverrir sem er höfundur að prjonamunstur.is. Það er prjónaforrit þar sem auðvelt er að hanna sitt eigið mynstur á peysur. Sverrir mun kynna forritið og kenna á það. Hann verður með okkur allt kvöldið og það geta allir sem vilja komið með fartölvurnar sínar og lært á forritið.
Karl og María töfra fram eitthvað gómsæt og gott eins þeim einum er lagið. Við erum öll velkomin að koma snema ef við viljum borða. Hlökkum til að hitta ykkur.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í mars
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður alla áhugasama velkomna í prjónakaffi í kvöld 1. mars, í Amokka í Borgartúni 21a, 105 Reykjavík. Prjónakaffið hefst klukkan 20:00 og stendur til 22.00.
Minnum á það er hægt að mæta fyrr og fá sér gott að borða fyrir prjónakaffið.
Það verður Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir sem kemur og kynnir bókina sína Þóra heklbók. Bókin var gefin út 2011 og í henni eru margar skemmtilegar hekluppskriftir. Hér má skoða meira um bókina http://www.facebook.com/heklbok
Nú eru Kalli og María búin að setja upp stórt sjónvarp til viðbótar sýningartækjunum sem voru síðast, svo nú geta allir séð kynninguna sem birtist uppi á vegg, alveg sama hvar þeir eru staddir í húsinu.
Það er kominn matseðill fyrir kvöldið:
· Gulrótarsúpa með engifer hvítlauk og nýbökuðu brauði.
· Lasagne með basil og piparkotasælu, ostagratin og fersku salati
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í febrúar
Nú er komið að prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins í febrúar.
Eins og venjulega er prjónakaffið haldið fyrsta fimmtudag mánaðarins en vegna breytinga í Kópavogi verður það haldið í AMOKKA í Borgartúni 21a . Kaffið og kynningin byrja kl. 20 en tilvalið að mæta fyrr og fá sér að borða. Við njótum áfram frábæru þjónustulundar þeirra Karls og Maríu í Amokka en bara á nýjum stað!
Í þetta sinn verður kynning á nýrri prjónabók sem kom út fyrir jólin, en það er "Móra- Bók sem jarmar" eftir Bergþóru Eiríksdóttur. Móra á Facebook
Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest í Borgartúninu!!
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í desember
Þann 1. desember á Amokka, Hlíðarsmára munu Ásdís Birgisdóttir og Linda Margrét Gunnlaugsdóttir kynna nýju prjónablöðin sín
„Lopi og band“.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Kjötsúpudagur
Á morgun verður hinn árlegi kjötsúpudagur en þá bjóða kaupmenn við Skólavörðustíg upp á kjötsúpu frá 14.00 og á meðan birgðir endast
Svo ætlar Rebekka Kristjánsdóttir frá Ístex að koma milli 13-15:30 og sýna flíkur úr bók 31 og leiðbeina fólki ef einhver er stopp í uppskrift úr þeirri bók .
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í október
Prjónakaffi er fimmtudaginn 06. október á Amokka í Kópavogi
kl: 20:00.
Allir velkomnir
|
 |
|
|
|
 |
 |
Lopi 31
Lopi 31 komið í verslunina okkar á Skólavörðustíg
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í september
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður að venju til prjónakaffis í Amokka Kópavogi, fimmtudagskvöldið 1.september kl. 20.00 Húsið opnar kl 18.00 eins og venjulega fyrir okkur sem viljum njóta réttanna á Amokka.
Að þessu sinni kemur Héléne Magnússon, höfundur bókarinnar Rósaleppar í nýju ljósi og kynnir fyrir okkur heimasíðuna sína Prjónakerling.is.
Heimilisiðnaðarfélagið ætlar síðan að vera með kynningu á námskeiðum sínum sem verða á haustönn.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Lopi og band - nýtt blað
Nýtt prjónablað Lopi og band komið
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í ágúst
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður alla áhugasama velkomna í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi,
Hulda Hákonardóttir, markaðs- og kynningarstjóri hjá Ístex mun kynna nýju Kambgarnsbókina og sýna okkur sýnishorn af prjónavörum sem eru í bókinni. Hún mun einnig fræða okkur um starfið sem fram fer hjá Ístex.
4.ágúst 2011 kl.20 húsið er opið frá kl.18
|
 |
|
|
|
 |
 |
Opið um verslunarmannahelgina
Opnunartíminn um verslunarmannahelgina verður eins og venjulega hjá okkur á Skólavörðustíg:
Laugardagur: 9-18
Sunnudagur: 11-17
Mánudagur: 9-21
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í júlí
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður að venju til prjónakaffis í Amokka Kópavogi, fimmtudagskvöldið 7. Júlí kl. 20.00 Húsið opnar kl 18.00 eins og venjulega fyrir okkur sem viljum njóta réttanna á Amokka og spara okkur kvöldmatarstússið.
Að þessu sinni verður nýjasta tölublað Hugs og Handar, rits Heimilisiðnaðarfélagsins, kynnt en það kom út í síðastliðnum mánuði. Patrick Hassel Zein mun kynna uppskriftina Hrói Höttur úr blaðinu og kannski eitthvað fleira.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Sumarlitadýrð frá Ístex
Sumarlitirnir í plötulopanum sem komu á markaðinn í fyrra verða einnig til í sumar. Fleiri litum hefur verið bætt við en það eru appelsínugulur og gulur. Þá verða einnig til hreinn rauður og fánablár sem eru ekki á litaspjaldi en hafa stundum verið fáanlegir. Litadýrðin er meiriháttar!
Sumarlitir frá Ístex
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í apríl 2011
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi. 7. apríl kl. 20.00 .
Að þessu sinni verður breytt út af vananum með kynningu kvöldsins. Í staðinn fyrir umfjöllun um prjón, garn eða handverk, ætlar Ágústa Erlingsdóttir skrúðgarðyrkjumeistari og brautarstjóri hjá LBHÍ að leiða okkur í allan sannleika um vorverkin í garðinum, svo gott er að hafa blað og penna með og punkta niður...svo er auðvitað spurning um að fara að prjóna sér vinnuvettlinga....ja eða spreyta sig á að prjóna lauka og annað grænmeti, hvernig væri það?
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í mars 2011
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi. 3. mars kl. 20.00 .
Kaffihúsið er opið fyrir þann tíma og býður upp á léttan hádegisverð gegn vægu verði.
Til að næra andlegu hliðina og gleðja augað, kemur síðan aðili frá Handprjón.is og leiðir okkur inn í undraheima garns og fleira sem snýr að prjónlesi.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Handavinnukvöld í Hallgrímskirkju
Kvenfélag Hallgrímskirkju stendur fyrir handavinnukvöldum í suðursal kirkjunnar (gengið inn að sunnanverðu), sem hér segir:
Miðvikudaginn:
9. febrúar
23. febrúar
9. mars
23. mars
6. apríl
Byrjar klukkan 20:00
Allt áhugafólk velkomið
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónasett frá Addi
Spennandi nýjung frá Addi!
Nú eru álprjónarnir frá Addi fáanlegir í setti í smekklegri tösku
Oddar 3,5 - 10,0
Einnig eru settin fáanleg úr bambus.
Snúrur fylgja hverju setti
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í nóvember
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi. 4. nóvember kl. 20.00 .
Kaffihúsið er opið fyrir þann tíma og býður upp á léttan hádegisverð gegn vægu verði.
Kynnt verður vefurinn saumaklubburinn.is
|
 |
|
|
|
 |
 |
Bók 30
Ný bók frá Ístex komin og er til í verslunum okkar.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í óktober
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi. 7. óktober kl. 20.00 .
Kaffihúsið er opið fyrir þann tíma og býður upp á léttan hádegisverð gegn vægu verði.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í september
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi. 2. september kl. 20.00 .
Kaffihúsið er opið fyrir þann tíma og býður upp á léttan hádegisverð gegn vægu verði.
Skólanefnd HFÍ Ísl. mun koma og kynna námskeið á vegum Heimilisiðnaðarskólans.
Heimilisiðnaðarskólinn er handmenntaskóli sem býður upp á nám í mörgum
greinum heimilisiðnaðar, handmennta og listar.
Verið velkomin í prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélags Íslands í Amokka,
Hlíðarsmára, Kópavogi.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Ný uppskrift! - Sumarvesti
Erum komnar með nýja uppskrift af Sumarvesti í sölu í búðinni á Skólavörðustíg. Vestið er úr einföldum plötulopa og einbandi og er prjónað frá hálsmáli og niður. Sniðið er nokkuð hefðbundið en skemmtileg tilbreyting að prjóna í „öfuga“ átt!
|
 |
|
|
|
 |
 |
Sumargleði í plötulopa
Sumarið nálgast og Ístex hefur ákveðið að fagna því með fallegum nýjum sumarlitum í plötulopanum. Einnig er komin ný ókeypis uppskrift að sumarpeysunni Sumargleði þar sem litirnir eru notaðir. Litirnir tóna vel við liti í einbandinu en athugið að þessir litir verða aðeins framleiddir í plötulopa í sumar samkvæmt upplýsingum frá Ístex.
Fjólublár 9044
Blár 1098
Blágrænn 1762
Grænt 9268
Bleikt 1768
Ljósbleikt 9128
Meira...
|
 |
|
|
|
 |
 |
Opnunartími 1. maí 2010
Verslanir okkar eru opnar sem hér segir:
Skólavörðustígur 19: kl. 11 - 15
Laugavegur 64: kl. 13 - 17
Verslun á Hótel Sögu: kl. 8 - 13 og 17 - 20
Gleðileg sumar!
Meira...
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í april
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi. 8. apríl kl. 20.00 .
Kaffihúsið er opið fyrir þann tíma og býður upp á léttan hádegisverð gegn vægu verði.
Því miður hafa þeir sem ætluðu að hafa kynningu í apríl afboðað sig. Það hefur enn enginn fengist í staðin enda fyrirvarinn frekar stuttur. En það er engin ástæða til að örvænta, það verður nóg að gera og gaman að vera saman.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í mars
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi. 4. mars kl. 20.00 .
Íslenska bútasaumsfélagið fagnar tíu ára afmæli sínu á þessu ári með ýmsum hætti. Einn liður í dagskrá afmælisárs er að kynna félagið með heimsóknum á handverks- og prjónakaffi víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu og út um land.
Anna Margrét Árnadóttir, fræðslufulltrúi Íb kynnir starfsemi félagsins og viðburði tengda afmælisárinu. Sýnt verður og sagt frá bútasaumsverkum samkvæmt Show and Tell hefðinni en einnig kynnir hún þær helstu nauðsynjar, efni,verkfæri og góss sem fylgir þessu áhugamáli.
Í farteskinu er einnig happadrætti í boði Íslenska bútasaumsfélagsins og styrktaraðila þess.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í janúar
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi. 7. janúar kl. 20.00 .
Í næsta prjónakaffi mun Edda Lilja Guðmundsdóttir koma og kynna hvað hún hefur verið að vinna að á síðasta ári:
Hún setti sér markmið að gera 1 húfa í hverri viku árið 2009 .
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í desember
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi. 3. desember kl. 20.00
Prjónadagar
Kristín Harðardóttir kynnir nýja prjónabók sem hún gefur út, Prjónadagar. Bókin er með dagatali og einni uppskrift fyrir hvern mánuð. Kristín gefur ýmislegt fleira út sem hún segir okkur væntanlega frá. Hún er með
heimasíðu:
Jólatréskraut
Jafnframt kynningu Kristínar beinum við því til allra gesta prjónakaffis sem vilja og geta að þeir komi með heima- og handgert jólatréskraut til að leyfa okkur hinum að njóta og til að skiptast á hugmyndum. Við verðum með jólatré til að skreyta þessa kvöldstund.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Peysa úr einföldum plötulopa og einbandi
Undanfarið hafa léttari flíkur úr lopa notið mikilla vinsælda og prjónafólk verið duglegt að spreyta sig á að prjóna úr einföldum plötulopa. Gallinn við að prjóna plötulopann einfaldan er sá að hann eyðist fljótt á slitflötum en þetta vandamál má leysa með því að prjóna úr einföldum plötulopa og einbandi saman. Einbandið styrkir flíkina töluvert án þess að hún verði mjög þykk. Áferðin verður mjög skemmtileg og sérstaklega létt þegar prjónað er á stærri prjóna.
Nú í sumar kom í sölu hjá okkur ný uppskrift að síðri peysu þar sem þessi aðferð er notuð. Peysan er með stuttum munsturbekk og áferðin einstaklega létt og falleg. Uppskriftina má nálgast í verslun okkar að Skólavörðustíg 19.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Knitpro – snilldar lausn fyrir þá sem prjóna mikið
Skrúfuprjónarnir frá Knitpro hafa vart farið framhjá neinum enda mikil eftirspurn eftir þeim um þessar mundir. Þessir prjónar eru snilldarleg uppfinning, snúrur og oddar eru skrúfuð saman eftir þörfum hverju sinni og hægt er að geyma ókláruð stykki á snúrunum ef nota þarf oddana í annað verkefni. Prjónarnir eru einstaklega fallegir úr marglitu tré og eru afar þægilegir í notkun, gott grip og passlega stamir.
Nú erum við komnar með prjónanna í sölu og getum hiklaust mælt með þeim af eigin raun. Hægt er að kaupa odda og snúrur í mismunandi stærðum og lengdum og festa saman eftir þörfum hverju sinni. Þá er einnig hægt að fá sokkaprjóna frá sama fyrirtæki. Hægt er að kaupa prjónanna í settum eða stök oddapör.
Einnig eru fáanlegir ýmsir aukahlutir og viðbætur svo sem fallegar töskur til að safna prjónunum í, heklunálar og skrúfuheklunálar fyrir rússneskt/túnískt hekl.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í nóvember
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20–22, í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi.
Prjónahettur
Það er Ebenezer Bárðarson sem hefur kynningu á næsta prjónakaffi. Hann býr til fallega smáhluti úr tré sem tengjast prjónum og prjónaskap. Það verður spennandi að sjá.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í september
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi, fimmtudaginn 3. september kl. 20–22, í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi.
Á næsta prjónakaffi mun skólanefnd Heimilisiðnaðarfélagsins mæta og kynna námskeið á vegum Heimilisiðnaðarskólans.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í ágúst
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi, fimmtudaginn 6. ágúst kl. 20–22, í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi.
Ragnheiður Eiríksdóttir, annar höfunda Prjónaprjóns ætlar að kynna bókin og fleira tengt henni.
Hún mun líka segja frá nýrri bók sem er væntanleg með haustinu og er um barnateppi.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Einband í sumar!
Litirnir eru rauður, appelsínugulur, gulur, þrír mismunandi grænir, tveir fjólubláir og bleikur (fjólubláu litirnir tveir til hægri í neðri hillu eru ekki nýjir). Mjög líflegir og sumarlegir!
|
 |
|
|
|
 |
 |
Nemar keppa um hönnun á lopapeysumynstri
Nemar í fatahönnun við Listaháskóla Íslands keppa nú um hönnun á vestfirsku lopapeysumynstri. 14 tillögur verða til umfjöllunar í keppninni og sérstök dómnefnd mun velja sigurvegarann. Vinningspeysan verður svo boðin handverksfélögum, verslunum með lopapeysur og einstaklingum til sölu í sumar. Að keppni lokinni verða allar peysurnar til sýnis víðs vegar um vestfirði.
Samkeppnin er samstarfsverkefni Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, Listaháskóla Íslands og Hönnunarmiðstöðvar Íslands og er styrkt af Vaxtarsamningi Vestfjarða og Ístex.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Ný uppskrift frá Handprjónasambandi Íslands
Í uppskriftina er notað plötulopi og mohair, sem er að sjalfsögðu hægt að versla hjá okkur.
Verið velkomin!
Meira...
|
 |
|
|
|
 |
 |
Blús í miðbænum laugardagur 4. Apríl
• Blúsdagskrá, í verslunum og á götum úti 13 - 17
• Nordic All Stars Blues Band heimsækir fangelsið á no 9 kl 13
• Bláir gjörningar við styttu Leifs Eiríkssonar kl 13.30
• Akstur Blúsvagna Krúserklúbbs Reykjavíkur kl 14.00 niður Skólavörðustíg og Bankastræti og rúntinn sem endar á bílasýningu á Lækjartorgi sem er til c.a 15.30. Lagt af stað frá stutt frá styttu Leifs Eiríkssonar. Bílasýning Krúserklúbbs Reykjavíkur á Lækjartorgi milli 14.15-15.30 www.kruser.is
• Blúsáhaldagangan leggur af stað kl 14.15 frá Eggerti feldskera
niður Skólavörðustíg og Bankastræti.
• Hópur blúsara fer með lifandi blús í verslanir og á kaffihús.
Allt getur gerst !
Nánari upplýsingar: blues.is
Meira...
|
 |
|
|
|
 |
 |
Eru lopapeysur uppseldar á Íslandi?
...nei ekki hjá okkur!
Bryndís Eiríksdóttir framkvæmdastjóri Handprjónasambandsins ræðir um stöðuna á lopapeysumarkaðnum og prjónaskap hér á landi í viðtali á Rúv.
Smelltu hér til að hlusta á viðtalið.
Smelltu hér til að fá upplysingar um hvernig er hægt að sækja um að verða félagi í Handprjónasambandinu.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í desember
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi, fimmtudaginn 4. desember kl. 20–22, í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi.
Það verða örugglega næg sæti!
Hinn vinsæli og frumlegi rithöfundur Hallgrímur Helgason koma og lesa fyrir okkur uppúr nýju bókinni sinni 10 ráð til að hætta að drepa fólk og fara að vaska upp.
Bókin hefur fengið frábærar viðtökur og þykir einhver sú skemmtilegasta sem Hallgrímur hefur skrifað. Bókin verður ekki til sölu í prjónakaffinu en Hallgrímur hefur samþykkt að árita bækur ef einhverjir koma með áður keyptar bækur. Flott að nota tækifærið.
Upplýsingar
Prjonakaffi
|
 |
|
|
|
 |
 |
Kjötsúpudagurinn á Skólavörðustígnum
Hinn árlegi „Kjötsúpudagur“ verður haldinn hátíðlegur á Skólavörðustígnum laugardaginn 25.október n.k.
Súpan er í boði samtaka sauðfjárbænda og grænmetisræktenda og það eru Siggi Hall, Úlfar Eysteinsson og Jói í Ostabúðinni sem sjá um að matreiða.
Kjötsúpan er löguð að hætti Sigga Hall.
Kjötsúpunni verður komið fyrir á hefðbundinn hátt fyrir utan Fangelsið á Skólavörðustíg 9, Handprjónasambandið, Skólavörðustíg 19 og á móti Hvítabandinu fyrir utan hjá Eggert feldskera. Þá verður grænmetissúpa úr lífrænt ræktuðu grænmeti fyrir utan Yggdrasil, Skólavörðustíg 16. Súpurnar verða í boði meðan birgðir endast.
13.55. Klukknaspil frá Hallgrímskirkju.
14.00. Kjötsúpuaustur hefst með hefðbundinni afhendingu á Íslenskri kjötsúpu til fanga og varða á 9unni.
14.00. Sýning á verkum Maríu Kjarval hjá KSK gallerí.
14.00. Birna Þórðar verður með menningargöngu frá Hallgrímskirkju.
14.30. Tónleikar hjá 12 Tónum.
15.00. Húnoghún: opnun myndlistasýningar Helga Skj. Friðjónssonar.
Önnur dagskráratriði:
Félagar í Kvæðamannafélaginu Iðunni ásamt þekktum skemmtikröftum munu skenkja gestum súpuna góðu.
Ýmsar uppákomur verða í verslunum á Skólavörðustígnum og úti á götu ef veður leyfir, listsýningar, dansað með kramhúsinu, harmonikkuspil, blús, prjónandi konur í Handprjónasambandinu, jarmandi kindur.
AÐALATRIÐIÐ ER: MAÐUR ER MANNS GAMAN ( úr Hávamálum nr 47).
|
 |
|
|
|
 |
 |
Sauðamessa í Borgarnesi
Handprjónasambandið verðu með kynningar- og sölubás í Skallagrímsgarði frá kl. 2 – 5 laugardaginn 4. okt. 2008.
Þar verður kynnt starfsemi félagsins og ný bók frá Ístex.
Einnig verða til sölu hanskar, ennisband og sjal sem selt er til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Ný prjónabók No. 28 frá Ístex
Nú er komin út ný prjónabók frá Ístex.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Rennilásar
Handprjónasambandið hefur tekið við sölu rennilása af gerðinni YKK af Saumasporinu Kópavogi.
Rennilásarnir eru seldir í verslun félagsins að Skólavörðustíg 19, gengið inn frá Klapparstíg.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í maí
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi, fimmtudaginn 1. maí kl. 20–22, í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi.
Margrét Árnadóttir hannyrðakona verður með kynningu á bútasaumsteppi frá Viktoríutímanum. Margrét hefur lengi starfað í bútasaumsdeild Virku, við afgreiðslu og ráðleggingar fyrir áhugasama um bútasaum.
Allt áhugafólk er velkomið með prjóna eða aðra handavinnu. Tilboð á kaffihúsinu. Prjónakaffið er fyrsta fimmtudag í mánuði. Prjónakaffið er fyrsta fimmtudag í mánuði.
Spjallþráður til að ræða um prjón og aðrar hannyrðir
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í apríl
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi, fimmtudaginn 3. apríl kl. 20–22, í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi.
Brynja Dögg Gunnarsdóttir hannar prjónuð föt undir nafninu BDG Hönnun/BDG Design, peysur, toppa, pils, armbönd, kjóla og fleira úr lopa. Fötin eru seld á netinu, BDG hönnun, og einnig bráðlega í sérverslun í Bandaríkjunum.
Allt áhugafólk er velkomið með prjóna eða aðra handavinnu.
Tilboð á kaffihúsinu. Prjónakaffið er haldið fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í mars
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi, fimmtudag 6. mars, kl. 20–22.
Þema kvöldsins verður:
Einband í nýrri útsetningu
Útprjónaðir kjólar eru aftur að koma í tísku og hefur Védís Jónsdóttir hannað nýjar flíkur fyrir handprjón úr íslensku einbandi. Í nýjasta prjónaheftinu frá Ístex eru uppskriftir að flottum kjólum og peysum en einnig einföldum flíkum fyrir þá sem hafa aldrei áður prjónað úr einbandi. Allt áhugafólk er velkomið með prjóna eða aðra handavinnu. Tilboð á kaffihúsinu. Prjónakaffið er fyrsta fimmtudag í mánuði.
Hlíðarsmári er í nágrenni Smáralindar en helstu kennileiti í eru hús Hjartaverndar og Air Atlanta.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Ný prjónabók frá Ístex
Nú er komin út ný prjónabók frá Ístex. Í henni eru uppskriftir af ýmsum flíkum úr einbandi.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Prjónakaffi í febrúar
Fimmtudaginn 7. febrúar kl. 20-22, verður prjónakaffi á kaffihúsinu Amokka, Hlíðarsmára 3, Kópavogi. Þar verður kynning á Skals handavinnuskólanum.
Allir velkomnir, takið með ykkur prjóna og gesti.
Spjallþráður til að ræða um prjón og aðrar hannyrðir
|
 |
|
|
|
 |
 |
Værðarvoðir
í mörgum litum og munstrum fást í verslunum okkar á Skólavörðustíg 19, Laugavegi 64 og versluninni Ull og gjafavörur á Hótel Sögu.
Meira...
|
 |
|
|
|
 |
 |
Peysur með rennilás
fyrir börn og fullorðna.
|
 |
|
|
|
 |
 |
Húfur og vettlingar
í miklu úrvali fást í verslunum okkar.
|
 |
|
|