Skólavörðustígur 19
101 Reykjavík
Sími 552 1890
Fax 554 5632
Heim
LEIT LEIT
English
Á döfinni
Prjónakaffi í maí
05-05-2010
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður áhugasömum að koma í prjónakaffi í Amokka í Hlíðarsmára, Kópavogi. 6. maí kl. 20.00 .

Kaffihúsið er opið fyrir þann tíma og býður upp á léttan hádegisverð gegn vægu verði.

Það verða Sigrún Helgadóttir og Þorgerður Hlöðversdóttir sem halda kynningu á prjónakaffinu þann 6. maí.

Í 13 ár hafa þær prófað sig áfram í jurtalitun og safnað í sarpinn þekkingu, hugmyndum og reynslu. Nú eru þær að leggja lokahönd á bók um jurtalitun sem kemur út nú á vordögum.

Með því vilja þær koma á prent hagnýtum leiðbeiningum um jurtalitun og kenna aðferðir sem byggja á gömlum hefðum en taka mið af nútíma þekkingu, aðstæðum og náttúruvernd.

Á pjónakaffinu munu þær segja í stórum dráttum frá innihaldi og uppbyggingu bókarinnar og sýna afrakstur af jurtalitunartilraunum.

31-01-2012
Prjónakaffi í febrúar
29-11-2011
Prjónakaffi í desember
03-11-2011
Prjónakaffi í nóvember
01-09-2011
Prjónakaffi í september
02-08-2011
Prjónakaffi í ágúst

HeimHeim Hafðu sambandHafðu samband Til bakaTil baka UppUpp