Prjónakaffi í september
01-09-2011
Heimilisiðnaðarfélag Íslands býður að venju til prjónakaffis í Amokka Kópavogi, fimmtudagskvöldið 1.september kl. 20.00 Húsið opnar kl 18.00 eins og venjulega fyrir okkur sem viljum njóta réttanna á Amokka.
Að þessu sinni kemur Héléne Magnússon, höfundur bókarinnar Rósaleppar í nýju ljósi og kynnir fyrir okkur heimasíðuna sína Prjónakerling.is.
Heimilisiðnaðarfélagið ætlar síðan að vera með kynningu á námskeiðum sínum sem verða á haustönn.
|
|