Útsaumur
Þessar skemmtilegu myndir eru hannaðar af Elsu E. Guðjónsson. Þær eru saumaðar með gamla krosssauminum og stærð þeirra er nálægt 10*10 cm. Í verslun okkar á Skólavörðustíg eru til sölu pakkningar sem innihalda allt sem þarf til saumanna, munstur, stramma og garn. Þeim sem vilja kynna sér íslenskan útsaum er bent á bók Elsu E. Guðjónsson, "Íslenskur útsaumur".
|